SÚPERDANSARAR

Súperdansarar er nýtt dansprógram sem er ætlað þeim nemendum sem ætla sér langt og vilja verða fjölhæfari dansarar!

Þetta eru vikulegir danstímar með gestakennurum sem sérhæfa sig í öðrum dansstílum en þeim föstu danstímum sem kenndir eru samkvæmt stundaskrá skólans. Þeir dansstílar sem teknir eru fyrir eru bæði klassískir og street dansstílar.

Dansstílarnir eru:

Ballet
Break
Locking
Nútímadans
Popping
Samkvæmisdans

Hver gestakennari kemur í tvær vikur í senn og tekur fyrir grunnspor og tækni í hverjum dansstíl fyrir sig. Kennarinn mun síðan binda danssporin og æfingarnar saman í dansrútínu fyrir nemendur.

Hér gefst nemendum tækifæri á að kynnast nýjum dansstílum og dansæfingum. Mikil áhersla er lögð á ítarlega kennslu og góð samskipti milli kennara og nemenda. Lagt verður upp úr því að nemendur séu duglegir að spyrja í tímum í þeim tilgangi að skilja hvern dansstíl sem best og ná góðum tökum á þeim æfingum sem eru lagðar fyrir hverju sinni.

Aldurstakmark í dansprógramið er bundið við 13. ára aldur.

Kennarar:

Ásgeir Helgi
Dansari í Íslenska Dansflokknum og Reykjavík Dance Company
Nútímadans

Jóna Kristín Benediktsdóttir
Margfaldur meistari í samkvæmisdönsum
Samkvæmisdans

Katrín Eyjólfsdóttir
Listdansari
Ballet

Natasha Monay Royal
Frumkvöðull í íslenskri street danssenu
Break og Popping

Ragna Þyrí
Street dansari
Locking

Skráning í fullum gangi

 

Skráning á haustönn skólans er nú hafin. Mikil eftirspurn er eftir dansnámi hjá skólanum að þessu sinni og því hvetjum við forelra til þess að ganga frá skráningu hið fyrsta til þess að forðast biðlista og tryggja nemendum öruggt pláss í danshópum.

Kennslustaðir eru fimm talsins að venju en það eru Laugar, Egilshöll, Mosfellsbær, Seltjarnarnes og Ögurhvarf í Kópavogi.

Því miður komust færri að en vildu á vorönn og því ítrekum við þetta enn og aftur við foreldra og forráðamenn að ganga frá skráningu. Allir danshópar eru takmarkðir við ákveðinn fjölda skráninga.

Allar fyrirspurnir varðandi starfsemi skólans skal senda á netfangið dwc@worldclass.is.

 

Skráðu þig á haustönn!

Skráning er nú formlega hafin á haustönn 2015. Komdu og lærðu hjá þeim bestu. Úrvalskennarar kenna hverjum danshóp og hafa þeir það að markmiði að hjálpa nemendum að ná markmiðum sínum og verða fjölhæfir dansarar. Danskennarar skólans eru þaulreyndir kennarar og danshöfundar og er skemmst frá því að segja að nokkrir þeirra eru þeir vinsælustu í kvikmynda-, auglýsinga- og skemmtanaiðnaðinum hér á landi.

Haustönn skólans hefst 7. september og spannar 12 vikur. Við bjóðum upp á markvisst og framsækið dansnám til þess að hámarka árangur nemenda. Við bjóðum upp á nýjungar í dansnáminu þar sem nemendur geta nú sótt valtíma og þar með sótt danstíma þrisvar sinnum í viku.

Í boði verður dansnám fyrir danshópa 7-9 ára, 10-12 ára, 13-15 ára, 16 plús og 20 plús. Nemendur í yngri flokkum, 7-9 ára og 10-12 ára, geta sótt danstíma tvisvar eða þrisvar viku en nemendur í 13-15 ára danshópum og eldri geta sótt tíma fjórum sinnum í viku. Er það valfrjálst.

Skipulag námskeiðsins
Skipulag í kennsluskrá er miðað út frá því að nemendur nái að hámarka árangur sinn. Ekki er fastur kennari á danshóp heldur fær hver danshópur nýjan kennara sem sérhæfir sig í ákveðnum dansstíl í þriðju hverri viku. Áherslan er lögð á dýpri skilning á hverjum dansstíl og er danskennslan markviss í hverjum tíma. Þeir dansstílar sem teknir eru fyrir á námskeiðinu eru Jazz, Nútímadans, Lyrical, Modern, Hip Hop, House og Commerical dansar.

Þetta skipulag á ekki við um danshópa 16 plús og 20 plús. Þeir danstímar einblína á kóreógrafíu í Commercial dönsum og Heels Performance.

Valtímar

Markmið valtíma er að auka skilning og getu í tækniæfingum og túlkun eða svokölluðum “performance” tímum. Valtímar eru ætlaðir til þess að auka árangur nemenda og vald þeirra á þeim æfingum sem kennarinn leggur fyrir í danstímum. Áherslur valtíma eru mismunandi í hverri viku þar sem farið verður í tækni nútímadansi, túlkun og tjáningu, einangrun vöðvahópa í commercial dönsum, uppbyggingu í kóreógrafíu og acrobatic (grunnæfingar í fimleikum), en fimleikaæfingar eru mikilvægar í dansstílum á borð við jazz og nútímadans.

Danskeppni í lok námskeiðs
Innanhús danskeppni mun fara fram í lok námskeiðsins. Er hún ætluð til þess að auka reynslu nemenda og bæta framkomu. Tilgangur keppninnar er einnig að ýta undir persónulega sköpun nemenda og að þeir nýti það sem þeir hafa lært á námskeiðinu í tækni og túlkun. Það er mikilvægt fyrir nemendur okkar að koma fram og viljum við skapa eins mörg tækifæri og við mögulega getum.

Taktu þátt í hreyfingunni og vertu með!

Skráning hefst mánudaginn 17. ágúst

Skráning á haustönn dansskólans hefst á morgun, mánudaginn 17. ágúst.

Við bjóðum upp á markvisst dansnám fyrir allan aldur. Dansnám þar sem dansarar ná árangri.
Í boði á haustönn er eftirfarandi:
-Dansnám tvisvar í viku í öllum aldurshópum.

-Dansnám þrisvar í viku fyrir aldurshópa 10-12 ára og eldri. En þar býðst dansþyrstum nemendum skólans að bæta við sig valtíma á föstudögum sem viðbót við fasta tíma samkvæmt stundatöflu.
-Dansnám fjórum sinnum í viku fyrir aldurshópa 13-15 ára og eldri. Um er að ræða prógram sem ber heitið Súperdansarar og er ætlað þeim nemendum með brennandi dansáhuga og með það að markmiði að leggja sig allan fram og ná árangri.
Stundatafla skólans er væntanleg hér á heimasíðu á mánudag.

 

Haustönn hefst 7. september

Haustönn dansskólans hefst mánudaginn 7. september! Við erum annar stærsti dansskólinn á landinu og sá eini sem sérhæfir sig í commercial dönsum. Allar upplýsingar varðandi námskeiðið verður hægt að nálgasst hér á heimasíðunni frá og með miðvikudeginum 12. ágúst.

Skráning á námskeiðin hefst mánudaginn 17. ágúst.

Uppskeruhátíð á morgun!

Á morgun, laugardaginn 30. maí, fer Uppskeruhátíð skólans fram í World Class í Kringlunni. Allir nemendur sameinast þar og eyða skemmtilegum tíma saman. Dagurinn hefst kl.10.00 á sameiginlegum danstíma fyrir alla nemendur á vornámskeiði. Þegar danstíma lýkur verður blásið til pizzaveislu og kennarar veita nemendum viðurkenningar fyrir þátttöku á námskeiðinu.

Þessi viðburður er einungis ætlaður nemendum á vornámskeiði skólans. Viðburðurinn ekki ætlaður foreldrum, forráðamönnum, fjölskyldu og vinum. Kennarar munu njóta samverustundar með nemendum og eiga góðan dag saman.

Dagskrá lýkur kl.13.15 og þá hvetjum við foreldra til þess að sækja nemendur á neðra plani World Class í Kringlunni. Það verður vel merkt. Tvær stórar mótttökuhurðar eru framan á húsinu og er þar við hliðina að finna hurð sem er innangeng.

Hlökkum til að eyða deginum með nemendum okkar!

Frí á Uppstigningardag 14. maí

Í dag er Uppstigningardagurinn og er frí í öllum danstímum skólans. Sjáumst í valtímum á morgun.

Valtímar morgundagsins eru eftirfarandi:
Egilshöll – Grooves
Mosfellsbær – Eingangrun (Isolations)
Seltjarnarnes – Modern Tækni
Ögurhvarf – Einangrun (Isolations)

Vonum að þið njótið dagsins!

Vornámskeið hefst í dag!

Vornámskeið dansskólans hefst í dag og er mikil eftirvænting eftir danstímunum. Metnaðarfullir og hæfileikaríkir dansarar skólans hafa nú gengið frá skráningu á námskeiðin og eru kennarar ánægðir að sjá nöfn þeirra sem hafa tekið miklum framförum á síðustu önn á blaði fyrir vornámskeiðið. Það er spennandi að hefja dansæfingar aftur og hjálpa nemendum að ná markmiðum sínum.

Enn er hægt að ganga frá skráningu hér á heimasíðu skólans.

Við vekjum athygli á því að ekki er mögulegt að sækja prufutíma á námskeiðið. Þetta er stutt og markvisst námskeið þar sem kennsluáætlun er skýr og hnitmiðuð og því mikilvægt að þeir nemendur sem ætla sér að sækja námskeiðið séu með frá upphafi.

Stundaskrá á vornámskeiði

[vc_row][vc_column][vc_column_text]

Stundaskrá fyrir danstíma á vornámskeiði er nú að finna hér á heimasíðu skólans. Vornámskeið hefst mánudaginn 27. apríl og spannar fimm vikur. Kennsla fer ýmist fram tvisvar eða þrisvar í viku en nemendum gefst nú tækifæri á að bæta við sig valtíma eða þriðja tímanum í viku. Mikil eftirspurn hefur skapast eftir auknum æfingatímum og við hlökkum til að hefja nýtt skipulag á vornámskeiði.

VERÐSKRÁ Á VORNÁMSKEIÐI

Vornámskeið, tvisvar í viku, án valtíma:     15.900 kr.

Vornámskeið, þrisvar í viku, með valtíma: 19.900 kr.

 

 

[/vc_column_text][/vc_column][/vc_row][vc_row][vc_column width=“1/1″][vc_single_image image=“3221″ img_link_target=“_self“ title=“Stundaskrá“ img_size=“2140×1306″][/vc_column][/vc_row]

Vornámskeið hefst 27.apríl

Vornámskeið skólans hefjast 27. apríl. Við munum bjóða upp á markvisst og framsækið dansnám til þess að hámarka árangur nemenda. Við bjóðum upp á nýjungar í dansnáminu þar sem nemendur geta nú sótt valtíma og þar með sótt danstíma þrisvar sinnum í viku. Við finnum fyrir auknum áhuga og eftirspurn er mikil eftir auknum æfingatíma. Vornámskeið spannar fimm vikur og stendur yfir frá 27. apríl – 31. maí. Í boði verður dansnám fyrir danshópa 7-9 ára, 10-12 ára, 13-15 ára, 16 plús og 20 plús. Nemendur geta sótt danstíma tvisvar eða þrisvar viku eins og tekið var fram hér að ofan og er það valfrjálst.

Skipulag námskeiðsins
Dansskólinn innleiddi nýtt skipulag í kennsluskrá á vornámskeiði á síðasta ári. Skipulag sem löngum hafði staðið til að innleiða og á sér fyrirmynd í dansskólum um allan heim. Hörfum við þá frá því skipulagi að halda föstum kennara á danshóp og munu kennarar þess í stað kenna hverjum danshóp, í hverri stöð, í þrjá tíma í heildina. Þetta skipulag gekk frábærlega í fyrra og náðu nemendur ótrúlegum árangri á skömmum tíma. Þannig fær hver danshópur nýjan kennara sem sérhæfir sig í ákveðnum dansstíl í annarri hverri viku. Áherslan er lögð á dýpri skilning á hverjum dansstíl og er danskennslan markviss í hverjum tíma. Þeir dansstílar sem teknir eru fyrir á námskeiðinu eru Jazz, Nútímadans og Commerical dansar.

Þetta skipulag á ekki við um danshópa 16 plús og 20 plús. Þeir danstímar einblína á kóreógrafíu í Commercial dönsum.

Valtímar

Markmið valtíma er að auka skilning og getu í tækniæfingum og túlkun eða svokölluðum „performance“ tímum. Valtímar eru ætlaðir til þess að auka árangur nemenda og vald þeirra á þeim æfingum sem kennarinn leggur fyrir í danstímum. Áherslur valtíma eru mismunandi í hverri viku þar sem farið verður í tækni nútímadansi, túlkun og tjáningu, einangrun vöðvahópa í commercial dönsum, uppbyggingu í kóreógrafíu og acrobatic (grunnæfingar í fimleikum), en fimleikaæfingar eru mikilvægar í dansstílum á borð við jazz og nútímadans.

Danskeppni í lok námskeiðs
Innanhús danskeppni mun fara fram í lok námskeiðsins. Er hún ætluð til þess að auka reynslu nemenda og bæta framkomu. Tilgangur keppninnar er einnig að ýta undir persónulega sköpun nemenda og að þeir nýti það sem þeir hafa lært á námskeiðinu í tækni og túlkun. Það er mikilvægt fyrir nemendur okkar að koma fram og viljum við skapa eins mörg tækifæri og við mögulega getum.

Skráning
Skráning hefst á fimmtudaginn eða 16.apríl. Skráning fer fram hér á heimasíðu. Stundatafla og upplýsingar um verð verða birt hér á heimasíðu á morgun, miðvikudag.

Okkar markmið er að skapa fjölhæfa dansara og leggjum við því mikið uppúr því að vera með fjölbreytta danstíma fyrir nemendur skólans. Við hlökkum til að taka á móti hæfileikaríkum nemendum okkar og halda áfram að dansa til árangurs á vornámskeiði.