Á föstudaginn var haldið fyrsta alvöru „community hangout“ fyrir nemendur DWC. Yfir 100 nemendur skólans mættu í World Class í Laugum og eyddu tíma saman. Það var frábært að sjá nemendur skólans á öllum aldri koma saman á í frábæru samstarfi við Joe & The Juice. Allir nemendur skólans eru með 30% afslátt hjá Joe & The Juice sem er jafnframt helsti styrktaraðili DWC Dance Camp. Að sjálfsögðu var nóg af samlokum og djúsum í boði fyrir alla og enginn fór svangur heim.

Nóg var um að vera:
– Frumsýning á nýju myndbandi með nemendum úr DWC Intensive
– Afhending á límmiðum
– Photo Booth frá Instamyndir sly í gegn
– Kynning á DWC Dance Camp

Okkur hlakkar mikið til næsta hangouts og þökkum öllum dönsurunum okkar fyrir frábæran dag.