FOUNDATION WORKSHOP

2 vikna námskeið
Hafdís Eyja er í stuttu stoppi á landinu og verður með Foundation Workshop í júní.
Kennsla fer eingöngu fram í World Class Laugum
2x í viku, mánudagar og miðvikudagar, í 2 vikur
Markmið námskeiðsins er að brjóta upp þægindarammann og bæta grunninn! 
Foundation tímar eru fyrir þá dansara sem vilja bæta sig!
Workshop fyrir dansara á aldrinum 11 ára og eldri.

Áhersla á grunnspor, tækni og ‘drills’ eða grunnæfingar. Það er mikilvægt að búa yfir góðri þekkingu á grunnsporunum og hafa gott vald á þeim. Á workshop-inu mun Hafdís fara vel yfir grunnsporin, setja þau síðan saman í rútínur og hjálpa nemendum að ná enn betri tökum á grunninum. Þetta er mikilvægt í að efla dansarana okkar. Góður grunnur er lykillinn að velgengni og einfaldar dönsurunum okkar að læra flóknari samsetningar á danssporum þegar lengra er komið.

KENNSLUSTAÐIR
Laugar

LENGD DANSTÍMA
90 mín í hvert skipti

LENGD NÁMSKEIÐS
2 vikur (10. – 24. júní)

TÍMASETNING
kl.16.00-17.30

VERÐ
16.990 kr.

ALDURSTAKMARK
11 ára

NÁNARI UPPLÝSINGAR
Allar nánari upplýsingar um dansnámið og stundaskrá er að finna á heimasíðu dansskólans, www.dwc.is.

FRÍSTUNDASTYRKUR
Ekki er hægt að nýta frístundastyrk þar sem námskeiðið nær ekki 10 vikum að lengd sem er lágmark fyrir nýtingu á styrknum.

UM HAFDÍSI EYJU

  • Hafdís Eyja er atvinnudansari. Hún byrjaði sem nemandi hjá DWC árið 2013 og byrjaði svo að kenna hjá skólanum haustið 2019. Hún kenndi hjá skólanum 2019-2021.
  • Haustið 2021 flutti hún til Kaupmannahafnar þar sem hún stundaði dansnám hjá Copenhagen Dance Space. Þar lærði hún hjá fullt af kennurum allastaðar að úr heiminum mest megnis á commercial og choreography sviði. Utan dansskólans sótti hún marga viðburði sem byggðu á freestyle og tilheyrðu hiphop senunni.
  • Vorið 2022 flutti hún til Amsterdam þar sem hún býr núna. Þar hefur hún verið að vinna með þekktum dönsurum í dansheiminum, Kenzo Alvares, Shay og Lolu Beckers.
  • Síðasta árið hef hún ferðast út um allt í Evrópu til þess að efla og dýpka þekkingu sína á dansi. Hún hefur verið mikið í París þar sem freestyle senan er einna stærst, Berlín og London svo fátt sé nefnt. Það er mikið um að vera í Evrópu.
  • Framtíðarsýnin er að túra og vinna með allskyns listamönnum og vera sjálf að kenna og skapa út um allan heimi. Næsta sem tekur við hjá Hafdísi í er danssýning með dansaranum og danshöfundinum Amari Monster. Hún verður í Perú og byggir mest á hiphop, dancehall og afro danstílunum.