
VORSÝNING Í ELDBORG
Sýningin fer fram laugardaginn 18. apríl á stærsta og glæsilegasta sviði landsins í Hörpu.
SKIPULAG
Tvær sýningar fara fram yfir daginn. Allir dansararnir okkar sýna á báðum sýningum nema dansarar í 7-9 ára danshópum. 7-9 ára danshópar sýna eingöngu á sýningu 1.
Sýning 1 kl.12.30
Allir danshópar skólans sýna á þessari sýningu kl.12.30
Sýning 2 kl.15.00
Allir danshópar skólans NEMA 7-9 ÁRA DANSHÓPAR KL.15.00.
Foreldrar barna í 7-9 ára hópum sækja þau eftir sýningu 1.
MÆTING
Eins og vanalega fara æfingar fram á sviði áður en sýningar hefjast á svokallaðri generalprufu. Allir danshópar taka þátt í generalprufunni og æfa staðsetningar á sviðinu. Dansarar mæta því tímanlega til þess að hitta kennara sinn og fá stuttermaboli sem allir sýna í. Eins halda verkefnastjórar smá tölu fyrir hópana áður en haldið er til æfinga á sviði. Mætingu er skipt niður á danshópa. Sjá töflu hér fyrir neðan.
Mæting er á eftirfarandi tímum:

HVAR MÆTA DANSARAR?
Dansarar mæta inn um starfsmanna inngang / bakinngang í Hörpu. Þessi inngangur er á hægri hlið hússins sem snýr að Esjunni og sjónum. Keyrið með fram hægri hlið Hörpu sem snýr að sjónum og sjáið innganginn þegar þið komið að bryggjunni. Inngangur er við hliðina á vörumóttökunni. Gengið er inn um rennihurðina úti á enda.
FATNAÐUR OG HÁRGREIÐSLA
NESTI
Gott er að huga að próteini, kolvetnum og skyndiorku. Vatnsbrúsi er mikilvægur og forðumst endileag nesti sem fer út um allt eins og popp, snakk og annað slíkt. Það er líka ekki orka sem skilar sér á svona degi. Eins með bakarísmat – endilega sleppa því – líka orkugjafi sem skilar sér illa út í líkamann.
-
Reynum að velja nesti sem er orkugjafi úr efstu hillu og er góð næring fyrir dansarana okkar.
-
ENGAR HNETUR ERU LEYFÐAR Í HÚSINU vegna bráðaofnæmis í nemendahópnum
MIÐASALA
Miðasala fer fram á tix.is.
Beinn linkur á miðasölu:
https://tix.is/event/21279/vorsyning-dwc
Við lofum mikilli dans veislu og hlökkum mikið til að vera með ykkur í Hörpu.
