VILTU TAKA DANSINN Á NÆSTA LEVEL?
Lokað námskeið fyrir dansara DWC sem vilja ná lengra.

NÆSTU PRUFUR FARA FRAM FÖSTUDAGINN 4. SEPTEMBER Í SMÁRALIND KL.16.30-18.30.

13 vikna námskeið með mismunandi kennurum þar sem farið er ítarlega í grunnþjálfun, tækni og framkvæmd í hinum ýmsu stílum.

Þetta er dansprógram fyrir alla dansara 11-20 ára (fæðingarár 2015-2007) og er lokaður hópur. Hópnum er aldursskipt í tvo hópa, yngri og eldri. Allir dansarar þurfa að mæta í dansprufur til þess að eiga möguleika á að taka þátt í prógraminu.

NEXT LEVEL YNGRI: 2015-2013
NEXT LEVEL ELDRI: 2012-2007

HVAÐ ER NEXT LEVEL?
Dansprógram sem hefur verið starfrækt í tvö ár. Metnaðarfyllstu dansaraar skólans taka þátt í prógraminu og taka þjálfuninni alvarlega. NEXT LEVEL hópar taka þátt í alls konar verkefnum á vegum skólans og eldri hópur fer í árlega dansferð erlendis á sumrin.
FYRIR HVERN ER PRÓGRAMIÐ?

Fyrir alla ástríðufullu dansarana okkar sem vilja ná enn meiri árangri og ætla sér lengra. Þetta er mjög krefjandi dansnám og við biðlum til allra dansaranna að mæta af fullum krafti inn í prógram-ið og öll tilbúin í alls konar áskoranir.

KENNSLA
Kennsla fer fram alla föstudaga í 13 vikur.
NEXT LEVEL YNGRI kl.16.30-18.30 í World Class Laugum
NEXT LEVEL ELDRI kl.17.00-19.00 í World Class Smáralind

HÓPURINN

Valið er inn í hópinn og þeir dansarar sem komast inn munu æfa stíft með mismunandi kennurum.

Það sem er tekið fyrir í prógram-inu er eftirfarandi:

– Break Dans
– House
– Popping
– Contemporary
– Performance tímar með áherslu á alignment
– Industry tíma með kóreógrafíum fyrir svið
– Freestyle tímar þar sem unnið er með mismunandi viðfangsefni í að bæta freestyle
Hópurinn fer í verkefni sem sýningarhópur, sýnir sér atriði á nemendasýningu, fer í video tökur og myndatöku.

MARKMIÐ
Við viljum ná því besta fram í dönsurunum okkar og leggjum mikið uppúr því að þessi hópur dansara komist í betri skilning á ýmsri dansfærni á borð við performance, pick-up, úthald, dýnamík, tónnæmi og persónulegan stíl svo eitthvað sé nefnt.

KENNARAR
Mismunandi kennarar kenna á námskeiðinu. Allt saman reynslumiklir dansarar í í danssenunni hér á landi. Þetta er einstakt tækifæri fyrir dansarana okkar til þess að taka dansinn skrefinu lengra og upplifa hvernig umhverfið er erlendis með því að taka svona krefjandi tíma.. Kennarar munu byggja tímana upp af sinni reynslu og færa það nær dönsurunum okkar. Meiri agi, meiri kröfur og erfiðari danstímar.

TÍMASETNING
Námskeiðið fer fram alla föstudaga, tveir klukkutímar í senn.
NEXT LEVEL YNGRI kl.16.30-18.30
NEXT LEVEL ELDRI kl.17.00-19.00

KENNSLUSTAÐUR
World Class Smáralind – NEXT LEVEL ELDRI
World Class Laugum – NEXT LEVELL YNGRI

DANSPRUFUR
Dansarar sækja um að taka þátt í prógraminu með því að taka þátt í dansprufum sem fara fram föstudaginn 4. september. Prufur fara fram kl.16.30-18.30. Það er sér valið inn í þennan hóp og er valið alfarið í höndum kennara.

Þeir dansarar sem komast inn í prógramið dansara þurfa að hafa þann grunn og þá færni sem til kennarar telja þurfa út frá áherslum í prógraminu.

VERÐ
65.990 kr.
Það er hægt að ráðstafa frístundastyrk upp í námskeiðið.

SKRÁNING
Þetta er lokað námskeið og því er ekki opið fyrir skráningu sem stendur. Þeir dansarar sem komast inn í prógramið verða forskráðir af kennara í kerfið og póstur verður síðan sendur á foreldra og forráðamenn sem geta gengið frá skráningunni í framhaldinu.

Á DÖFINNI :  DWC NEXT LEVEL HÓPUR
Það sem er á döfinni fyrir hópinn.

  • Sýningarhópur sem mun taka þátt í verkefnum á vegum skólans
  • Upptökur á video
  • Myndatökur
  • Sér sýningaratriði á jólasýningu skólans