DANCEOFF 2025

Við erum spennt að halda DANCEOFF danskeppni DWC í annað skiptið eftir margra ára hlé og mun hún fara fram laugardaginn 25. október í Tjarnarbíó.

Það var uppselt á viðburðinn í upphafi árs og troðfullt út úr húsi.

DANCEOFF er dansbikarkeppni þar sem sigurvegarar fá dansbikar.

MARKMIÐ
Markmiðið með keppninni er að hvetja nemendur til þess að koma fram með sinn eigin dansstíl.

Keppt er í einstaklings- og hópakeppni (sami einstaklingur getur tekið þátt bæði í einstaklings- og hópakeppni)

ATRIÐI
Nemendur sýna frumsaminn dans og sjá alfarið um alla þá þætti sem snúa að því að sýna opinberlega fullbúið dansatriði. Hér er átt við alla umgjörð dansatriðisins, s.s. hugmyndavinnu, tónlist, búningahönnun og að semja og setja saman dansrútínuna. Með þessu móti öðlast nemendur aukinn þroska sem listamenn og dansarar og víkka sjóndeildarhringinn með því að dansa sína eigin sköpun og fara sínar eigin leiðir í ferlinu.

Nemendum er leyfilegt að taka þátt í báðum flokkum, þ.e. í einstaklingskeppni og svo einnig sem partur af hóp í hópakeppni. Til þess að taka þátt í hópakeppni þurfa nemendur að vera að minnsta kosti þrír saman í hóp og ekki fleiri en fimm talsins.

DANCEOFF Danskeppni 2025 fer fram laugardaginn 25. október.

FYRIRKOMULAG
Keppt er í einstaklings- og hópakeppni (sami einstaklingur getur tekið þátt bæði í einstaklings- og hópakeppni)

Í hópakeppni eru 2-8 manns saman í hóp

Atriði skal vera frumsamið af nemendum

LENGD ATRIÐA
Einstaklings (Solo): 75-90 sekúndur
Hópur: 90-120 sekúndur

Í hópakeppni eru 2-8 manns saman í hóp

SKRÁNING
Skráning er hafin og henni lýkur mánudaginn 3. mars.
Tónlist og öllum öðrum upplýsingum þarf að skila inn fyrir mánudaginn 10. mars.

SKRÁNINGARGJALD
3.500 kr. fyrir hvern einstakling í einstaklingskeppni (solo).
4.000 kr. fyrir hvern einstakling í hópakeppni.

Ef einstaklingur ætlar sér að taka þátt í báðum flokkum, þ.e. einstaklings- og hópakeppni, þá þarf að greiða skráningargjald í báða flokka.

Skráning er bindandi og skráningargjald fæst ekki endurgreitt.