Danceoff dansbikar á laugardaginn

 

DanceOff dansbikarkeppnin fer fram á laugardaginn kemur, þann 1. nóvember,  í Tjarnarbíó. Keppnin er hin stærsta til þessa en 132 nemendur eru skráðir til þátttöku. 26 í einstaklingskeppni og 106 í hópakeppni eða samtals 32 hópar. Þar af leiðandi hefur keppni verið skipt upp í tvo hluta. Fyrri hluti fer fram kl.11.00 en þá fer keppni fram í aldursflokki 10-12 ára. Seinni hluti fer fram kl.14.30 og er keppt í aldursflokkum 7-9 ára og 13-15 ára.
Við hvetjum nemendur til þess að mæta með hollt og gott nesti með sér til þess að halda orkunni uppi og líkamanum í jafnvægi fyrir og eftir keppnina. Eins að mæta með vatnsbrúsa. Vatn er mikilvægt á svona degi.

MÆTING
Keppendur í fyrri hluta mæta kl.09.00 og keppendur í seinni hluta kl.12.30. Tvær klukkustundir eru áætlaðar í hvorum hluta í sameiginlega upphitun fyrir nemendur, kynna reglur til leiks og renna yfir öll keppnisatriði á svokallaðri generalprufu.

Húsið opnar hálftíma fyrir hvorn hluta, þ.e. kl.10.30 í fyrri hluta og kl.14.00 í seinni hluta.
Miðaverð er 1000 kr. og er eingöngu selt inn við hurð. Frítt er inn fyrir börn 12 ára og yngri.

Verðlaunafhending fer fram beint eftir keppni í hvorum hluta fyrir sig. 90 mínútur eru áætlaðar í hvorn keppnishluta.

Viðburðurinn er opinn öllum og hvetjum við fjölskyldur og vini til þess að mæta og njóta þess að horfa á þessar rísandi dansstjörnur sýna hæfileika sína. Það tekur kjark, vilja og elju að semja sína eigin dansrútínu og flytja fyrir áhorfendur á keppni sem þessari. Kennarar eru stoltir af sínum nemendum og við hlökkum mikið til að sjá atriði allra keppenda á laugardag.

Gestavika

Þessa vikuna fer fram gestavika innan skólans en þá fá allir danshópar annan kennara en fastan kennara sinn í danstíma. Tilgangur vikunnar er að kynna nemendur fyrir enn fleiri dansstílum og öðrum kennsluaðferðum. Fjölhæfni er mikilvægur þáttur fyrir alla dansarara og er nauðsynlegt að nemendur kynnist fleiri en einni nálgun að tækniæfingum og danssporum. Kennarar skólans flytja sig um danshópa og miðla þekkingu sinni til annarra nemenda. Þetta er jákvæð þróun á starfsemi skólans og hefur ríkt mikil ánægja meðal nemenda með þetta fyrirkomulag. Það verður því gaman að fylgjast með danstímunum í þessari viku.

DanceOff Dansbikar 1. nóvember í Tjarnarbíó

 

DANCEOFF er dansbikarkeppni sem fer fram í Tjarnarbíó á haustönn. Fyrsta keppnin fór fram árið 2012 þar sem troðfullt var út úr húsi og hefur verið árlegur viðburður síðan.

Markmiðið með keppninni er að hvetja nemendur til þess að koma fram með sinn eigin dansstíl. Keppnin er nú orðinn fastur viðburður innan skólans og mun fara fram í fjórða sinn núna í haust. Á síðasta ári tóku yfir 100 nemendur skólans þátt og sýndu listir sínar fyrir fullu húsi í Tjarnarbíó.

Danceoff Dansbikar skiptist í tvo flokka, einstaklings- og hópakeppni. Keppni er aldursskipt í báðum flokkum og er keppt til verðlauna. Nemendur sýna frumsaminn dans og sjá alfarið um alla þá þætti sem snúa að því að sýna opinberlega fullbúið dansatriði. Hér er átt við alla umgjörð dansatriðisins, s.s. hugmyndavinnu, tónlist, búningahönnun og að semja og setja saman dansrútínuna. Með þessu móti öðlast nemendur aukinn þroska sem listamenn og dansarar og víkka sjóndeildarhringinn með því að dansa sína eigin sköpun og fara sínar eigin leiðir í ferlinu.

Nemendum er leyfilegt að taka þátt í báðum flokkum, þ.e. í einstaklingskeppni og svo einnig sem partur af hóp í hópakeppni. Til þess að taka þátt í hópakeppni þurfa nemendur að vera að minnsta kosti þrír saman í hóp og ekki fleiri en fimm talsins.

Skráning er hafin hjá kennurum en henni lýkur miðvikudaginn 15. október.

DanceOff Dansbikar 2014 fer fram laugardaginn 1.nóvember.

Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu:
http://dansstudioworldclass.is/danceoff-dansbikar/#!

Kennarar í nýju myndbandi Damien Rice


Þriðjudaginn 23. september síðast liðinn voru nokkrir af kennurum skólans ráðnir til þess að dansa í nýju myndbandi, hins ástsæla írska söngvara, Damien Rice. Lag hans “The Blower’s Daughter” hefur löngum átt miklum vinsældum að fagna og heyrist enn á öldum ljósvakans.

Ný plata er væntanleg frá honum seint í byrjun næsta árs og á umrætt myndband að fylgja einu af lögunum eftir. Myndbandið var tekið upp í Bláa Lóninu og spila dansararnir stórt hlutverk í þessu mjög listræna verkefni. Voru þeir málaðir svartir frá toppi til táar og áttu í miklum hlutverkaleik, sem þeir skiluðu í gegnum dansformið.  Damien var hæstánægður með frammistöðu þeirra og var mikið fjör á tökustað. Þeir kennarar sem dönsuðu í myndbandinu eru þær Bergdís Rún Jónasdóttir, Dóra Júlía Agnarsdóttir, Snædís Anna Valdimarsdóttir og Þóra Rós Guðbjartsdóttir. Katrín Eyjólfsdóttir sem hefur einnig starfað sem kennari hjá skólanum var auk þess ráðin í verkefnið ásamt dönsurunum Ellen Margrét Bæhrenz og Þórey Birgisdóttir.

Myndbandið er væntanlegt í lok þessa árs, til stuðnings á einu af fyrstu útgefnu lögum plötunnar. Myndbandið mun birtast á heimsvísu og hlökkum við mikið til þess að sjá það birt.

Kennarar og nemendur dansandi í Latabæ

[vc_row][vc_column][vc_column_text]

 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum að barnasýningin, Ævintýri í Latabæ, er nú sýnd á fjölum Þjóðleikhússins. Um umfangsmikla sýningu er að ræða og hefur hún fengið lof gagnrýnenda að undanförnu. Söng- og dansnúmer eru fjölmörg og af alls kyns toga. Þar er farið inn á marga mismunandi dansstíla í takt við tónlist sem samin er af Mána Svavarssyni, tónlistarhöfundi Latabæjar. Sýningunni er leikstýrt af Magnúsi Scheving og Rúnari Frey Gíslasyni.

Þetta verkefni stendur okkur nærri þar sem tveir af kennurum skólans og þrír af nemendum skólans taka þátt í sýningunni. Þar að auki er Stella Rósenkranz, deildarstjóri skólans, danshöfundur sýningarinnar. En Stella hefur starfað sem danshöfundur Latabæjar frá árinu 2011. Kennarar og nemendur skólans eru í hlutverki dansara en eru það kennararnir Jóna Kristín Benediktsdóttir og Katrín Eyjólfsdóttir sem um ræðir. Jóna Kristín er fastur kennari á haustönn en Katrín er við afleysingar þessa önnina. Nemendur skólans eru þau Jasmín Dúfa Pitt, Hilmar Steinn Gunnarsson og nýr nemendi skólans, Brynjar Dagur Albertsson. Þess ber að geta að Jasmín deilir hlutverki Sollu Stirðu með frænku sinni Melkorku Davíðsdóttur Pitt og fer með það hlutverk þegar svo ber undir.

Skólinn leggur mikið upp úr því að bjóða upp á tækifæri fyrir dansara skólans og erum við stolt af því að bæði kennarar og nemendur skólans taka þátt í þessu metnaðarfulla og flotta verkefni.

 

[/vc_column_text][vc_gallery type=“image_grid“ interval=“3″ images=“2434,2435,2437,2438,2439″ onclick=“link_image“ custom_links_target=“_self“ title=“Hér má sjá myndir af dönsurum í ferlinu“][/vc_column][/vc_row]